Fréttir
Fréttir

12. október 2026
Iðnver hefur undirritað samstarfssamninga við XVent, Microbe Biosolutions (MBS) og BioAqua. Með samstarfinu styrkjum við framboð okkar á lausnum fyrir fiskeldi, iðnað og frárennslishreinsun. XVent sérhæfir sig í loftræstingu og afloftun fyrir landeldi. Styrkur fyrirtækisins liggur í lausnum sem eru hannaðar fyrir krefjandi aðstæður fiskeldis, með áherslu á orkunýtni, endingu og hagkvæman rekstur. Tækjabúnaður þeirra tekur 70% minna pláss en sambærilegur búnaður. Microbe Biosolutions (MBS) þróar líffræðilegar lausnir sem nýta náttúrulegar örverur til að brjóta niður lífræn efni og draga úr lyktarvandamálum. Lausnir fyrirtækisins nýtast meðal annars í fráveitum, frárennslishreinsun og fiskeldi. BioAqua sérhæfir sig í vatns- og frárennslishreinsun fyrir meðal annars matvælaiðnað og fiskeldi. Samstarf okkar beinist sérstaklega að lífrænni hreinsun frárennslis, þar sem örverur eru nýttar til að brjóta niður lífræn efni. Fyrirtækið býr jafnframt yfir víðtækri þekkingu á meðhöndlun frárennslis, seyruafvötnun og endurnýtingu vatns og verðmætra efna. Við hjá Iðnver veljum samstarfsaðila af kostgæfni og gerum miklar kröfur til þekkingar, gæða og þjónustu. Þessir nýju samningar bætast við öflugt samstarfsnet okkar og gera okkur kleift að bjóða fjölbreyttari lausnir, sniðnar að þörfum hvers verkefnis. Við hlökkum til áframhaldandi uppbyggingar og spennandi verkefna með viðskiptavinum okkar og samstarfsaðilum!

21. maí 2026
Iðnver ehf. er stolt af því að tilkynna um gerð tímamótasamnings við landeldisfyrirtækið Laxey sem mun kaupa ECA-rafal af Iðnver. Um er að ræða byltingarkennda lausn fyrir sótthreinsun og þrif hjá fyrirtækinu í Vestmannaeyjum. Samningurinn er mikilvægur áfangi í samstarfi fyrirtækjanna sem hafa það að markmiði að auka nýsköpun og bæta umhverfisvernd í íslenskum sjávarútvegs- og matvælaiðnaði. ECA-vatn ECA-vatn (Electrolyzed Water) er umhverfisvæn tækni þar sem sjór og rafmagn eru nýtt til að framleiða öfluga, náttúrulega hreinsilausn með rafgreiningu. Tæknin býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika og hentar sérstaklega vel þar sem gerðar eru miklar kröfur um hreinlæti, öryggi og gæða. Notkun á ECA-vatni er mjög áhrifarík aðferð til að eyða bakteríum, veirum og öðrum örverum, án þess að nota til þess skaðleg eða hættuleg efni. Þessi lausn hentar því einkar vel í sjávarútvegi, matvælaiðnaði, heilbrigðisþjónustu og ýmsum iðnaðarferlum, en einnig í sundlaugum og annars staðar þar sem mikilvægt er að tryggja hreint og öruggt umhverfi. ECA- tæknin styður auk þess við sjálfbærni og umhverfisvernd með því að takmarka þörf fyrir hefðbundin skaðleg hreinsiefni og minni notkun þeirra dregur úr mengun umhverfisins. Jafnframt getur þessi nýja tækni stuðlað að bættum vatnsgæðum við ýmsa framleiðsluferla þar sem hreinleiki skiptir sköpum. Laxey og sjálfbærni Landeldisfyrirtækið Laxey er mjög áhugasamt um sjálfbærni og hefur skuldbundið sig til að nota lausnir sem stuðla að verndun umhverfisins. Með því að fjárfesta í ECA-rafalnum frá Iðnveri, staðfestir Laxey að þau eru á réttri leið í átt að sjálfbærri þróun og eru opin fyrir nýrri tækni sem getur haft jákvæð áhrif á umhverfið. Framhaldið Samstarf Iðnvers, Laxeyjar felur í sér að deila þekkingu og reynslu á þessu nýstárlega sviði, sem mun stuðla að enn frekari nýsköpun í íslenskum matvælaiðnaði. Með því að sameina krafta sína vonast fyrirtækin til að stuðla að aukinni notkun umhverfisvænna lausna og skapa þannig verðmæti fyrir fyrirtækin og samfélagið með betri grænni framtíð.





